Sri Chinmoy
  Sri Chinmoy er fæddur árið 1931 í Shakpura, sem er lítið þorp í Bangladesh (þá Austur-Bengal) og var gefið nafnið Chinmoy Kumar Ghose. Sri Chinmoy var yngstur sjö systkina, en árið 1944, eftir að foreldrar hans féllu frá, gekk Chinmoy, þá tólf ára gamall, í Ashram Sri Aurobindos sem er andlegt samfélag  í Pondicherry á Suður Indlandi. Þar dvaldi hann næstu tuttugu árin við andlega iðkun svo sem langar hugleiðslustundir, íþróttaæfingar, ljóðagerð og skriftir auk þess að semja trúarleg sönglög.

Á unglingsárum sínum öðlaðist Sri Chinmoy djúpar innri upplifanir og á árunum sem eftir fóru efldist hugleiðsla hans til æðri stiga. Árið 1964 flutti hann til New York í þeim tilgangi að deila sínum innri auði með einlægum leitendum á Vesturlöndum.

Sri Chinmoy álítur að þráin eftir því andega - stanslaus þrá hjartans eftir æðri og dýpri veruleika - sé innra aflið á bak við alla framþróun trúarbragða, menningar, íþrótta og vísinda.
Með því að dvelja í hjartanu og sækjast stöðugt eftir að komast á æðra vitundarstig, geta konur og menn dregið fram það besta sem í þeim býr og fundið leiðina að ánægjuríku lífi, eða, eins og hann orðar það: „Takmark okkar er að fara úr birtu í meiri birtu til þess bjartasta, frá hæð til hærri hæða í hæstu hæðir, og meira að segja í hæstu hæðum er þróun okkar án enda , því sjálfur Guð er innra með okkur öllum og Guð er hvert einasta augnablik að fara fram úr sínum eigin veruleika.”

Í dag þjónar Sri Chinmoy nemendum frá 60 löndum sem andlegur leiðbeinandi. Hann hvetur til jafnvægis í lífsvenjum, sem felur í sér iðkun bæna og hugleiðslu sem og atorku nútíma lífsmáta.

Líf Sri Chinmoys einkennist af ótæmandi sköpunargáfu og gífurlegum afköstum á sviði tónlistar, ljóðagerðar, mynlistar, bókmennta og íþrótta. Framlag hans til allra þessara greina hefur víða vakið eftirtekt.

Hann ferðast reglubundið vítt og breitt um heiminn til að halda tónleika fyrir almenning án endurgjalds, flytja fyrirlestra, bjóða upp á hugleiðslustundir fyrir almenning, hitta nemendur sína og ræða andleg málefni við ýmsa framámenn á alþjóðavettvangi sem og þjóðarleiðtoga. Sri Chinmoy tekur ekki gjald fyrir andlega leiðsögn sína, tónleikahald, fyrirlestra eða hugleiðslustundir fyrir almenning.