Það má með sanni segja að vegur hinna vikulegu Self-transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupa sé sífellt að aukast. Þriðjudaginn síðastliðna, þann 14. september, voru sett ekki færri en þrjú met. Hlaupið var fjölmennara en nokkru sinni fyrr og tveir hlauparar hlupu á besta tíma sínum frá upphafi.
En svo við byrjum á byrjuninni, þá var gott haustveður til hlaupa - örlítið kalt en stillt og þurrt, auk þess sem sólin gægðist inn. Átta hlauparar tóku þátt, sem er met, en gamla metið var fimm hlauparar.
Snatak Matthíasson gerði heiðarlega tilraun til að slá vallarmetið, 10:42, en varð fjórum mæðulegum sekúndum of seinn. Þessi tími dugði honum þó til að sigra örugglega.
Andrés Ramón varð í öðru sæti á tímanum 11:20 og er það besti tími hans frá upphafi. Annar hlaupari sem hljóp á sínum besta tíma var Davíð Sigurgeirsson sem hljóp á 14:00. Það sem meira var, þessi tími Davíðs dugði til að stela 3. sætinu frá Upajukta Ágústssyni, en Upajukta hefur verið áskrifandi að því sæti hingað til. Munaði 10 sekúndum á þeim kumpánum.
Í miðju hlaupi fékk skipuleggjandi hlaupsins, Ganagane Stefánsson, upphringingu frá óþreyjufullum aðdáanda vefsíðunnar okkar sem býr í Bandaríkjunum. Vildi hann vita hvort úrslitin færu ekki beint inn á netið.
Hér koma úrslitin (millitími eftir 1 mílu gefinn upp í sviga):
Karlaflokkur:
- Snatak Matthíasson 10:46 (5:17)
- Andrés Ramón 11:20 (5:35)
- Davíð Sigurgeirsson 14:00 (6:56)
- Upajukta Ágústsson 14:10 (6:54)
- Ágúst Örn Márusson 14:56 (6:53)
- Víðir Sigurðsson 16:09 (7:43)
- Rúnar Páll Gígja 21:31 (6:51)
- Steinunn Torfadóttir 19:47 (10:02)