Sri Chinmoy trúir að jafnvægi í lífsvenjum skapi samræmi og innri frið. Lífsspeki hans er öðrum hvatning til að stunda líkamsrækt og íþróttir sem lið í að umbreyta lífi sínu.

„Á Jörðinni eru ótal margir sem ekki trúa á innri styrk eða innri tilveru, þeim finnst að hið efnislega sé allt og sumt. Ég er ekki sammála þeim,” segir hann. „Innri tilvera er til,  andinn er til, geta mín til að lyfta þungum hlutum sannar að hann er jafnframt að verki í efninu. Ég lyfti með líkamanum en aflið til þess kemur frá innri uppsprettu, frá bænum mínum og hugleiðslu.”

Sri Chinmoy æfir íþróttir ekki einungis ánægjunnar vegna og til að halda líkamanum í góðu formi, heldur líka vegna þess að hann lítur á íþróttir sem eðlilega aðferð til að tjá þá lífsskoðun sína að menn geti alltaf bætt sig. Nokkrir af nemendum Sri Chinmoy hafa farið að dæmi hans og fært út sín takmörk til hins ýtrasta, og sett um leið nokkur heimsmet í ýmsum greinum, þeir hafa hlaupið margra daga hlaupum, synt yfir Ermasundið og klifið heimsins hæstu fjöll.

„Hvað gefur lífinu gildi
ef ekki stöðugt ákall þess
að færa út eigin takmörk?”

Sri Chinmoy- Meditation, Man-Perfection in God-Satisfaction

Sri Chinmoy hefur skrifað ítarlega og svarað mörg hundruð spurningum um íþróttir sem leið til andlegs þroska.

Hann stofnaði Sri Chinmoy Maraþon liðið, sem árlega stendur fyrir hundruðum íþróttaviðburða og keppnishlaupa víðsvegar um heiminn.

Tenglar:
Myndband http://www.srichinmoy.org/html/library/poetry/poetry.html
Spurningar og svör http://www.srichinmoy.org/html/library/sports/index.html